Það er gaman að breyta til og ég sendi lesendur inn í helgina með brakandi fersk Borgartíðindi í stað þess að hefja vinnuvikuna á pósti eins og venjulega. Farið varlega í hálkunni. Mannfjöldaspáin Hagstofa Íslands gaf í vikunni út sína árlegu mannfjöldaspá, nú til ársins 2068. Nú sem fyrr eru töluverðir óvissuþættir í spánni en jafnframt nokkir öruggir punktar. Mannfjöldaþróunin er það sem drífur áfram alla eftirspurn eftir húsnæði, fólkið sem þarf þak yfir höfuðið er það sem knýr eftirspurnina að langmestu leyti. Oft fær sú hlið sem ákvarðast meira af aðgengi að fjármagni og bjartsýni neytenda meira vægi í umræðunni enda skiptir það afkomu fasteignamarkaðarins meira máli. Lánastofnanirnar sem fjármagna viðskiptin sjá breytingarnar á framboðshliðinni skýrt í sínum bókum. Hinumegin í jöfnunni er það afkoma húsnæðisnotenda sem safnast upp sem tap eða hagnaður en sést hvergi eins vel. Hvort fólk býr þröngt eða of rúmt sést ekki eins vel né heldur fórnarkostnaðurinn sem verður ef einhver flytur á brott eða ef fjölskylda stækkar ekki.
17 Kynslóðavandi, húsnæðisþing