🚧Lóðir í Úlfarsárdal til sölu - aftur Úlfarsárdalur er vettvangur mestu einstöku fjárfestinga Reykjavíkurborgar nú um mundir. Stóreflis hverfismiðstöð fyrir skóla, bókasafn, sundlaug og íþróttir er að rísa og gatnagerð stendur yfir á nýjum áfanga svæðisins við Leirtjörn. Engu að síður eru enn lausar lóðir í þessu hverfi og stendur nú yfir útboð á lóðum í einbýlis-, rað- og fjölbýlishúsum. Að stórum hluta er þó um að ræða íbúðir sem voru boðnar út í fyrrahaust. Ég tel að minnsta kosti 21 lóð er að koma til sölu að nýju. Markaðurinn fyrir lóðir virðist vera að kólna af því að dæma eða þá að erfiðlega gangi að fjármagna framkvæmdir. Það er mikið verið að byggja á sama tíma og verð stendur í stað, því er ekki ólíklegt að lánveitendur velti fyrir sér stöðunni og haldi aftur af framkvæmdum í bili.
6 - Lóðir og uppbygging